ágætt

Halló þetta gengur ágætlega hjá mér en frekar hægt. en mér er sagt að góðir hlutir gerast hægt.

Eg er farin að skrifa matardagbók og er á annarri viku. og ég er búin að missa 1,2kg. ég byrjaði í þessari viku að fara út í göngu í ca 40 mín í senn og ætla að lengja tímann í klst í næstu viku. ég ætla að fara svona 3 4 sinnum í viku út að ganga. Búin að taka kók útaf lista hjá mér og það eru að verða komnir 8 dagar. Þannig að þetta gengur.

takk í bili

Já sæll

Þá er ég komin hér enn eina ferðina. Og nú skal þetta takast á morgun 4. ágúst þá skal þetta byrja og ég er bara á sama stað og fyrir 1 ári og fyrir 3 árum síðan stend bara í stað rokka á milli 66,4kg og upp í 72kg. Hef einu sinni náð 66,4 kg og það var í apríl´09. en sú tala var ekki lengi því strax í næstu viktun var hún farin upp á við.

 En núna veit ég að ég get alveg hætt að drekka kók sem er minn helsti óvinur og nammi shitt hvað það er gott. En nú er bara komið blátt bann á það. 

í dag er ég 70 kg og mitt markmið fram að jólum er að missa 10 kg.  Ef þau verða fleiri verð ég rosalega ánægð með mig.

Gangi mér vel…

Kannski að ljóstra því hver ég er ?????

Já þetta átak. ætlar bara enganveginn að virka neitt hjá mér. Ég stend í stað enþá og búin að gera í næstum eitt ár. Eða það eru + / - 3kg alltaf.

En nú kveikti eitthvað í mér því það eru aðeins 14 vikur í jólin ómg. Og mig langar svo að komast í fínan kjól og líta ágætlega út í honum. Ég er svona að velta því fyrir mér hvort ég eigi að nafngreina mig, kannski það sparki eitthvað í rassinn á mér ég held samt ekki. Því ég er að gera þetta fyrir sjálfa mig en ekki neinn annann. Úff þetta er ekki auðvelt.

Ég byrjaði á fullu í síðustu viku og var sjúklega dugleg. Fór í göngu á hverjum morgni og hætti að drekka kók en svo varð ég veik og er reyndar enn veik búin að vera í heila viku með skíta flensu. En ég verð eiginlega að koma mér af stað á morgun get ekki misst meira úr vinnu.

Mér finnst ég vera að endurtaka leikinn frá því í fyrra. Var að skoða bloggið þegar ég byrjaði á þessari síðu og þá var staðan sú sama og er í dag. En það er einn + við þetta ég stend í stað en ekki búin að bæta á mig neinu.

Þannig að nýtt upphaf byrjar á morgun fimmtudaginn 18. sept. 2008 70 kg og markmiðið fyrir jólin eru - 10 KG

ER ÞAÐ RAUNHÆFT?????

bkv bolla

Jæja

smá fréttir af mér. Þetta gengur bara enganveginn hjá mér. Þetta virðist vera svo erfitt hjá mér. En ég fór í sveitina og ég bætti nú á mig 3kg þar og það var líka leift sér allt þar. Þannig að ég fór upp í 73 kg en þau eru farin aftur og ég er svosem ekki búin að reyna neitt. Ég ætla að minnka kókdrykkjuna mikið hjá mér en ég er að drekka allt í 2L á dag og svo ætla ég líka að reyna að hætta að narta í eitthvað (nammi aðalega) eftir kl 20.

Svo læt ég ykkur vita hvernig gengur.

HEHEHE

Já já.

byrjaði í dag að taka inn brennslutöflur frá EAS og já ég svitnaði. en ég ákvað að fresta eða réttara sagt aðeins að lengja tímann með Markmiðin mín. Því ég sé það að þessi 2 kg verða ekki farin fyrir miðvikudag. Þannig að ég lengdi þetta allt aðeins. Er að fara í sveitina á fimmtudag og þar bætir maður yfirleitt á sig svona 2 kg en ég ætla að vera dugleg að fara út að hlaupa og passa mig í namminu.  Í dag er fyrsti kóklausi dagurinn minn og mig langar geðveikt í kók núna en nei ég ætla ekki að fá mér. Tek einn dag í einu í þessu.

Annars er ég á fullu að leita af Þrekhjóli eða svona skíðavél(crosstrainer) fyrir lítinn pening. Maður kemst ekki alltaf út í göngu. Þannig að ég hugsa að ég mundi nota tækið mikið. Ef einhver á endilega commenta svo ég geti haft samband.

annars segi ég bara bless í bili og læt heyra í mér 22 maí næst.

bkv ein bjartsýn

ég er alveg lost

Ég er bara engan veginn að nenna neinu þessar vikurnar. Er svoleiðis full af nammi og kóki og ég bara verð að fá þetta. ég er forfallinn nammigrís. svo þegar ég er búin að borða fullt af nammi og kóki þá líður mér svo illa. En samt fer ég alltaf í sama vítahringinn.

Svo er eitt sem pirrarr mig geðveikt mikið er að íþróttahúsið hér í bæ er lokað og sundlaugin og tækjasalurinn líka vegna framkvæmda og verður ekkert opnað fyrr en í lok júlí. Og ég ætla alltaf að byrja að fara út í göngu eða út að hlaupa en ég bara kem mér aldrei í það.

Ég er gjörsamlega að mygla á þessum helvítis aukakílóum.

Vá hvað ég er að verða geðveik á þessu. AFHVERJU kemur maður sér ekki í það að gera eitthvað í sínum málum. Mnni líður sjúklega illa og finnst maður maður vera ógeðsleg en samt gerir maður ekki neitt…………..

Hættu að vorkenna sjálfri þér og komdu þér af stað en það er bara svo helv… erfitt að koma sér af stað.

djö… helv….ansk….ansk….helv….. helvíti…..

Nýtt blað byrjar

Með hækkandi sólu þá fer maður að langa meira og meira að gera eitthvað fyrir sjálfan sig en maður bara kemur sér ekki í það. Því það er svo mikið að gera hjá manni til að geta náð endum saman.

Það er geðveiki að eiga hús, reka bíl, eiga ofan í sig og á , svo kemur upp nokkrar heimsóknir til læknis og maður er gjörsamlega á kúpunni djöfull er dýrt að fara til læknis og í ransóknir.

Ég hef allatíð verið hraust og svona. En núna bara í MARS er ég búin að eiða í lækniskostnað um 20.þ krónum og um 15Þkrónum í lyf. Djöfull er ég brjáluð og svo var þetta bara þvagfærasýking komin upp í nýru. og hnúturinn í brjóstinu var bara sýking. BARA segi ég sem betur fer var þetta ekkert annað. og ég er útskrifuð og í góðu lagi með mig.

En núna er ég ákveðnari en nokkru sinni fyrr. nú skal þetta takast. Litla barnið mitt er komið á leikskóla loksins þannig að ég hef smá tíma áður en ég fer í vinnu og ég ætla sko að fara að drýfa mig á lappir og koma mér af stað.

 Ég prenntaði út matardagbók af www.thjalfun.is og ætla að skrifa mitt niður. Kannski ef ég nenni að setja það inn þá kannski sýni ég ykkur matardagbókna mína eftir viku.

Læt ykkur vita hvernig gengur.

3 vikur síðan síðast

Jæja þá eru um 3 vikur síðan ég vigtaði mig síðast eða svoleiðis. Ég þoli ekki þessa helvítis vigt. Ég fer á hana á hverjum degi og helst kvölds og morgna hvað er að manni. Er mikið að spá í að henda henni bara.

á þessum 3 vikum hef ég misst eitt kg. Mér finnst þetta bara ekkert ganga. Ég hef ekki tíma í að stunda ræktina. En ég reyni að hreyfa mig eitthvað þegar ég er að þjálfa. Það gengur svona upp og ofan.

jæja læt þetta duga í bili.

Þið segið það

þetta er ekki alveg að ganga hjá mér. ég fór niður um 500gr þessa vikuna. En ég á aðeins viku eftir að mínu fyrsta markmiði og ég er ekki að sjá það á þessari viku að ég nái af mér 2 1/2 kg. þannig að ég verð að setja mér þetta markmið út næsta mánaðar út febrúar. Úff hvað þetta getur verið erfitt alltof margar freistingar í kringum mann. Ég er farin að hreyfa mig aðeins meira en ekki nóu mikið.

læt þetta duga í bili endilega koma með pepp ef einhverjir rekast hérna inn…..

kv

Góður dagur

Dagurinn í dag er búinn að vera mjög góður.

Fór í vinnu og stóð freystingarnar af mér þar. Kom heim og fékk mér epli. Á nammi í skápnum lét það vera. Fór svo að þjálfa og fór út að hlaupa með 5 og 6 flokk.

Borðaði góðan kvöldmat. Drakk reyndar 2 3 glös af kóki með. Fór svo í vinnuna um kvöldið og þar drakk ég bara vatn.

Kom heim og fékk mér hálfa appelsínu.

í Dag er ég búin að drekka ca 3 og 1/2L af vatni.

Er bara mjög sátt við daginn.

bkv