þetta er ekki alveg að ganga hjá mér. ég fór niður um 500gr þessa vikuna. En ég á aðeins viku eftir að mínu fyrsta markmiði og ég er ekki að sjá það á þessari viku að ég nái af mér 2 1/2 kg. þannig að ég verð að setja mér þetta markmið út næsta mánaðar út febrúar. Úff hvað þetta getur verið erfitt alltof margar freistingar í kringum mann. Ég er farin að hreyfa mig aðeins meira en ekki nóu mikið.
læt þetta duga í bili endilega koma með pepp ef einhverjir rekast hérna inn…..
kv
Ein ummæli
Hæhæ, man ekki hvort ég hef kommentað hjá þér áður, en bara um að gera að hengja sig ekki í markmiðunum! Skítt með það þótt þú náir því ekki á réttri dagsetningu, 500 grömm þýða að þetta er á niðurleið og það er fyrir öllu! Það er heilt smjörlíkisstykki!
Gangi þér vel.