Með hækkandi sólu þá fer maður að langa meira og meira að gera eitthvað fyrir sjálfan sig en maður bara kemur sér ekki í það. Því það er svo mikið að gera hjá manni til að geta náð endum saman.
Það er geðveiki að eiga hús, reka bíl, eiga ofan í sig og á , svo kemur upp nokkrar heimsóknir til læknis og maður er gjörsamlega á kúpunni djöfull er dýrt að fara til læknis og í ransóknir.
Ég hef allatíð verið hraust og svona. En núna bara í MARS er ég búin að eiða í lækniskostnað um 20.þ krónum og um 15Þkrónum í lyf. Djöfull er ég brjáluð og svo var þetta bara þvagfærasýking komin upp í nýru. og hnúturinn í brjóstinu var bara sýking. BARA segi ég sem betur fer var þetta ekkert annað. og ég er útskrifuð og í góðu lagi með mig.
En núna er ég ákveðnari en nokkru sinni fyrr. nú skal þetta takast. Litla barnið mitt er komið á leikskóla loksins þannig að ég hef smá tíma áður en ég fer í vinnu og ég ætla sko að fara að drýfa mig á lappir og koma mér af stað.
Ég prenntaði út matardagbók af www.thjalfun.is og ætla að skrifa mitt niður. Kannski ef ég nenni að setja það inn þá kannski sýni ég ykkur matardagbókna mína eftir viku.
Læt ykkur vita hvernig gengur.
Ein ummæli
Ójá, læknisheimsóknir eru sko ekki ódýrar. Í byrjun 2007 eyddi ég hátt í 70.000 kall í læknisheimsóknir og rannsóknir. Var svo sett á rándýrt lyf sem ég þakka guði fyrir að TR borgar allt, annars væri mánaðarskammturinn eitthvað í kringum 50.000 kallinn…
En hjá mér náði þetta heilsuvesen að kikkstarta mér og kannski gerir það það sama hjá þér.
Gangi þér vel!