Ég er bara engan veginn að nenna neinu þessar vikurnar. Er svoleiðis full af nammi og kóki og ég bara verð að fá þetta. ég er forfallinn nammigrís. svo þegar ég er búin að borða fullt af nammi og kóki þá líður mér svo illa. En samt fer ég alltaf í sama vítahringinn.
Svo er eitt sem pirrarr mig geðveikt mikið er að íþróttahúsið hér í bæ er lokað og sundlaugin og tækjasalurinn líka vegna framkvæmda og verður ekkert opnað fyrr en í lok júlí. Og ég ætla alltaf að byrja að fara út í göngu eða út að hlaupa en ég bara kem mér aldrei í það.
Ég er gjörsamlega að mygla á þessum helvítis aukakílóum.
Vá hvað ég er að verða geðveik á þessu. AFHVERJU kemur maður sér ekki í það að gera eitthvað í sínum málum. Mnni líður sjúklega illa og finnst maður maður vera ógeðsleg en samt gerir maður ekki neitt…………..
Hættu að vorkenna sjálfri þér og komdu þér af stað en það er bara svo helv… erfitt að koma sér af stað.
djö… helv….ansk….ansk….helv….. helvíti…..
2 ummæli
Já, það er erfitt að byrja. Við höfum allar upplifað þetta… En haltu bara ótrauð áfram og vertu jákvæð, elskaðu þig og þá kemur þetta.
Gangi þér vel!
mundu bara að þetta er fíkn. Það er ekki auðvelt að venja sig af neinum fíknum og því verður erfitt. Þú þarft að byrja á að losna við nammið og kókið - venja sig af því með hörkuna að vopni