Já já.
byrjaði í dag að taka inn brennslutöflur frá EAS og já ég svitnaði. en ég ákvað að fresta eða réttara sagt aðeins að lengja tímann með Markmiðin mín. Því ég sé það að þessi 2 kg verða ekki farin fyrir miðvikudag. Þannig að ég lengdi þetta allt aðeins. Er að fara í sveitina á fimmtudag og þar bætir maður yfirleitt á sig svona 2 kg en ég ætla að vera dugleg að fara út að hlaupa og passa mig í namminu. Í dag er fyrsti kóklausi dagurinn minn og mig langar geðveikt í kók núna en nei ég ætla ekki að fá mér. Tek einn dag í einu í þessu.
Annars er ég á fullu að leita af Þrekhjóli eða svona skíðavél(crosstrainer) fyrir lítinn pening. Maður kemst ekki alltaf út í göngu. Þannig að ég hugsa að ég mundi nota tækið mikið. Ef einhver á endilega commenta svo ég geti haft samband.
annars segi ég bara bless í bili og læt heyra í mér 22 maí næst.
bkv ein bjartsýn
2 ummæli
Sæl.
Vildi bara óska þér góðs gengis.
Átti svona skíðavél í nokkra mánuði, en endaði með því að selja gripinn. Var orðinn hinn fínasti fatastandur!
Ég hef verið að nota aðeins brennslutöflurnar frá EAS, er ekki frá því að þær virki
Gangi þér vel skvísa.