Kannski að ljóstra því hver ég er ?????

Já þetta átak. ætlar bara enganveginn að virka neitt hjá mér. Ég stend í stað enþá og búin að gera í næstum eitt ár. Eða það eru + / - 3kg alltaf.

En nú kveikti eitthvað í mér því það eru aðeins 14 vikur í jólin ómg. Og mig langar svo að komast í fínan kjól og líta ágætlega út í honum. Ég er svona að velta því fyrir mér hvort ég eigi að nafngreina mig, kannski það sparki eitthvað í rassinn á mér ég held samt ekki. Því ég er að gera þetta fyrir sjálfa mig en ekki neinn annann. Úff þetta er ekki auðvelt.

Ég byrjaði á fullu í síðustu viku og var sjúklega dugleg. Fór í göngu á hverjum morgni og hætti að drekka kók en svo varð ég veik og er reyndar enn veik búin að vera í heila viku með skíta flensu. En ég verð eiginlega að koma mér af stað á morgun get ekki misst meira úr vinnu.

Mér finnst ég vera að endurtaka leikinn frá því í fyrra. Var að skoða bloggið þegar ég byrjaði á þessari síðu og þá var staðan sú sama og er í dag. En það er einn + við þetta ég stend í stað en ekki búin að bæta á mig neinu.

Þannig að nýtt upphaf byrjar á morgun fimmtudaginn 18. sept. 2008 70 kg og markmiðið fyrir jólin eru - 10 KG

ER ÞAÐ RAUNHÆFT?????

bkv bolla

Rita ummæli

Netfangið þitt verður ekki birt. Reitir sem krefjast útfyllingar eru merktir með *

*
*