já já

Jæja þá eru 2 vikur liðnar að mínu átaki en því miður gengur þetta ekki eins og ég ætlaði mér. ég bara get ekki hætt að borða þetta blessaða sælgæti og drukkið þetta kók. Kallinn minn vann mig fyrstu vikuna og hann missti eitt kg en ég stóð í stað. Svo er vigtun aftur annað kvöld og ég er viss um að ég sé búin að bæta á mig svona einu kg. Hata þetta helvítis drasl. 

Afhverju þurfa sumir að hafa ekki neitt fyrir þessu og aðrir púla og púla og ekkert skeður.

ég er alveg brjáluð núna og ætla rétt að vona að ég geti farið að missa einhver kg.

Mánudagurinn 7.janúar

Já í dag byrjaði átakið mitt. Dagurinn fór mjög vel af stað. En endaði ekki svo vel. í vinnunni í kvöld þá datt ég aðeins í makkíntos dollu og svo eftir 22 þá fékk ég mér 3 piparkökur með rjóma.

Uss uss.

ég vigtaði mig í gær og var bara frekar sátt aðeins 2 og 1/2 kg kom á mig um jólin. Þannig þegar þetta átak mitt byrjar er ég 69.5kg.

Og 1 markmiðið mitt er að lækka um 3kg í janúar.

tjá…..

2008

Jæja gott fólk. Ég veit það eru bara engir sem vita af þessari síðu. Enda var hún bara ætluð mér. Ég er ekki enþá tilbúin að nafngreina mig ekki fyrr en ég er komin vel af stað.

En jólin hafa verið æðisleg ég náðu nú ekki nema 3kg af mér í desember. Það er bara nokkuð gott. og ég held að ég hafi nú samt náð að setja þau á mig um jólin. Veit það samt ekki. Eftir að vigta mig. En mitt átak hefst á fullu mánudaginn 7.janúar. Og stefnan er tekin á -3kg í byrjun feb.

Ég segi nú bara gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.

Þriðjudagurinn 4.des

Jæja þá er aðventan gengin í garð og hörku átak byrjað hérna.

Ég byrjaði á herbalife í gær og gengur bara rosalega vel var með hitting í gær og bauð upp á grænmeti eina daim köku og osta og vínber og saltstangir. Kók og kristal ég drakk bara kristal og fékk mér smá snarl. En alls ekki mikið. Er voða stolt af mér. Ég drakk kannski 1L af kóki yfir helgina. Annars hef ég verið kóklaus í viku í dag.

Það er alltaf eitthvað gotterí í skál í vinnunni og smá kökur hef látið það vera í gær og í dag.

Ég varð smá hissa í gærkvöldi þegar ég steig á vigtina þá sýndi hún 68,5kg.  Það er bara nokkuð gott.

Ég ætla mér að vera aðeins minni um jólin og njóta þessa að borða þá.

bkv

mánudagur til mæðu

Jæja þá er mánudagurinn að verða búinn.

Ekkert kók búið að fara inn fyrir mínar varir í dag. Ég fékk mér einn kaffibolla með 3súkkulaðibitum í og léttmjók.

í vinnunni í kvöld fékk ég mér eina mandarínu bara. Í staðin fyrir fullt af nammi (einsog hefur alltaf verið)

En svo kom ég heim um 22 og þá var ég bara ósjálfrátt komin með súkkulaði í hendina. Kláraði það bara.

út

Laugard.nótt

Jæja þá er Sunnudagur í vændum.

Við erum orðin hress.

Á morgun er síðasti kókdagurinn hjá mér fram að jólum allavega. Kannski lengur.

Og ég ætla líka að borða ekkert nammi þangað til næsta laugard.

Ætla að borða pínu nammi á sunnud.

Mákonan mín kom áðan og spurði mig hvort ég væri að léttast. Kinnbeinin mín væru farin að sjást. Ég var voða sátt með það. Og svona komment hvetur mann áfram. Kg hafa ekkert farið en ég finn smá mun á fötunum mínum.

En Herba sendingin mín klikkaði eitthvað þannig að hún kemur sennilega á þriðjud.miðvikud. vonandi.

Þá byrjar það.

út

Veikindi

Jæja þá er maður vonandi að stíga úr þessar viðbjóðslegu flensu. Er svona nokkurnvegin hita laus. Fór ekkert út í dag en ætla og verð að fara í vinnurnar á morgun.

átakið gengur ekki eins og ég ætlaði mér.  Er búin að lifa á kóki og súkkulaði.

En eins og ég sagði áður um leið og herba dótið kemur þá byrjar alvaran.

Veikindi

Veikindi setja nú strik í reikninginn minn.

Í gær hafði ég skrítna list. fékk mér drykkjarjógúrt í morgunmat. hádeginu fékk ég mér lasagnea með grænmeti. Svo fékk ég mér súkkulaðikex í kaffinu. Drakk ca 1 og 1/2 L af vatni + 1/2L á æfingu í gærkveldi. Í kvöldmatnum þá fór ég í afmæli og þar voru sko kræsingar og ég bara leifði mér það sem ég vildi fékk mér kók að drekka.

Í dag er ég búin að liggja bara fyrir er algjör drusla. Litla barnið mitt kom svo líka heim lasið. Þannig að við erum 2 hérna að druslast.

Mig langar svo mikið í kók og nammi en ekkert til á þessum bæ. Þannig að það verður aðeins að bíða. Kallinn kemur heim seinnipartinn. Úff ætla að fara að leggja mig.

út

Þá byrjar það

Ég er að spá í að blogga um mitt átak. Veit ekki hvort að það sé eitthvað hvetjandi fyrir mig en ég ætla að prufa það. Þannig endilega komið með góð pepp og comment.

Ég er 2ja barna móðir í 120%vinnu og hef lítinn tíma og enga orku til að  hreyfa mig en það virkar best ég veit það.

En ég er búin að prufa allann anskotann. Fullt af kúrum sem ég gefst fljótt upp á eða þá að ég á ekki pening til að endurnýja skammtinn.

Ég er mesti nammigrís og kókfíkill í heimi. Ég gæti gjörsamlega lifað á því.

En núna er ég búin að vera á Metasys í tæpan mánuð og ég bara stend í stað. Er nýbyrjuð að taka inn Thermalin sem eru ólöglega töflur hér á landi en þær eiga að gefa manni meiri orku og auka brennsluna. Ég finn engan mun á mér. þannig að ég er búin að auka skammtinn í 2töflur 2x á dag í staðinn fyrir 1tafla 2x á dag.

Svo ætla ég að fara að taka inn Herbalife á morgnana shakeinn og drekka ca 1/2L af teinu á dag. og taka inn þessar vítamíntöflur.

Ég er um 155cm á hæð og er mjög smágerð og er 70kg. Mig langar að missa ca 20kg. þá er ég komin á sama stað og ég var áður en ég átti mitt fyrsta barn fyrir 6árum síðan. Ég vil helst vera laus við þessi aukakíló næsta sumar.

Í dag þá borðaði ég 1/2 Hlöllabát og kókglas í morgunmat. í hádeginu eða um ca 13:00 Þá fékk ég mér einhverja kjúklingaböku með hrísgrjónum og grænmeti. og ca 1L af vatni.  Um 15:00 fékk ég mér kaffibolla ég drekk ekki kaffi og mér hefur alltaf þótt það mjög vont.( en ég prufaði á laugard. að fá mér kaffibolla með 4 suðurskúkkulaði bitum í og nýmjólk og það var bara helvtí gott.)  já fékk mér svoleiðisbolla þarna um 3leitið og ég held eða að mér fannst ég fá smá meiri orku og pissa alveg helling af því. eða er það kannski bara vatnið sem ég drakk ca 1/2L af vatni líka þá. Svo í Kvöldmat þá fékk ég mér grillaða pylsu, smá súkkulagðiköku og pepsi. eftir 20 þá fékk ég mér malt í gleri og súkkulaði stykki með svona lakkrís inní og eina banastöng. Og núna  er ég orðin svöng og ætla reyndar að fá mér bara eina appelsínu fyrir svefninn.

Vó ég verð að taka mataræðið í gegn. Byrja á fullu í því þegar Hörbó pöntunin mín kemur.

Hef þetta ekki lengra í bili.

kveðja Bolla